| gisting í Sölvanesi Gamla húsið, ljósmynd: D.Bothe Verið velkomin í"gamla húsið" í Sölvanesi. Það er nú nýtt sem gistirými og þar eru 4 svefnherbergi, baðherbergi og eldhús með setustofuhorni. Herbergin taka 9 manns, 3 eru tveggja manna og eitt þriggja manna, auk þess sem hægt væri að koma fyrir þremur í viðbót á svefnbekkjum. Smábarnarúm er til reiðu. Gestir geta valið um uppbúin rúm eða svefnpokapláss. | Í holinu er sjónvarp, og í eldhúsinu eru öll nauðsynleg eldunaráhöld og leirtau ef gestir vilja elda sjálfir. Húsið getur nýtst fyrir smærri hópa. Í því tilfelli væri hægt að koma fyrir fleira fólki í núverandi íbúðarhúsi í þremur tveggja manna herbergjum. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga þar um. Verð:
Gisting: |
| Svefnpokapláss | 1.850 IsKr |
| Uppbúið rúm | 2.550 IsKr |
Matur: |
| Morgunverður | 950 IsKr |
| Kvöldverður | 2.000-2.200 IsKr |
| Nesti | 950 IsKr |
Veiðileyfi: | Ókeypis í urriðaveiði og gæsaveiði ef gist er. | |    Myndir úr gamla bænum: D.Bothe
| Sölvanes, 560 Varmahlíð +++ s.: 453 80 68 +++ solvanesskag@simnet.is |