|
Afþreying og
athyglisverðir staðir Í
Skagafirði eru margir athyglisverðir staðir, er kalla á lengri eða styttri ferðir.
Þar sem Sölvanes er ekki fjarri miðju héraðins, er það ágætis dvalarstaður
þaðan sem hægt er að fara í lengri eða styttri skoðunarferðir í átt til hafs
eða jökla. Hér eru nokkur dæmi.
Náttúran
|
|
Drangey
Úti fyrir miðju héraðinu rís Drangey úr hafi. Eyjan er paradís fugla, fuglavina og
náttúruskoðara. Þegar vel viðrar eru daglegar bátsferðir frá Sauðárkróki og út
í eyjuna. Taka þær um 5 klukkustundir. Leitið upplýsinga hjá Drangeyjarferðum
s:453-6503 og 846-8150. |

Drangey
|
Mælifell
Vestur af Sölvanesi er Mælifellshnjúkur 1138m hár. Ofan af honum er frábært útsýni
í góðu skyggni og talið að þaðan sjáist í 7 sýslur. Upp á hnjúkinn er stilkuð
gönguleið af Mælifellsdal. Hægt er að aka á bil að upphafsstað gönguleiðarinnar.
Gangan upp tekur um 2 klukkustundir. |

Mælifellshnjúkur, ljósmynd: Eydís
|
Austurdalur
Framarlega í héraðinu skiptist byggðin í Svartárdal, Vesturdal og Austurdal en til
forna voru þeir nefndir Goðdalir. Eftir Austurdal rennur Jökulsá austari. Á
Jökulsá, við eyðibýlið Skatastaði er kláfferja, sem varðveitt er sem dæmi um
samgöngumáta fólks hér áður fyrr. Ferðafólki ber að sýna fyllstu varúð við
kláfinn, en aðeins er hægt að ferja vestan megin frá, þannig að ferðalangur einn
síns liðs getur alls ekki komist fram og til baka á kláfnum. Athyglisverðir staðir
í Austurdal eru Merkigilið, sem sést best handan að rétt fyrir framan Bústaði og
Ábæjarkirkja. Hægt er að komast áleiðis að kirkjunni á bílum, en ganga verður
síðasta hluta leiðarinnar. Tveggja stunda gang fyrir framan Ábæ er svo gangnamanna-
og ferðafélagsskálinn að Hildarseli. Þykir sérstök upplifun að ganga þessa leið
og njóta þeirrar einstæðu kyrrðar er þar ríkir. [til baka] |
Kláfurinn, ljósmynd: Máni
|
Athyglisverðir staðir og söfn
|
|
Glaumbær
Átta km. norður af Varmahlíð ef ekið er í áttina til Sauðárkróks er
byggðasafnið að Glaumbæ. Höfðingjasetrið Glaumbær var byggt um miðja 19. öld og
sýnir húsakost betri bænda fyrir 150 árum siðan, síðan, auk timburhússins frá
Ási í Hegranesi, sem reist var nær aldamótunum og hýsir nú veitingahús safnsins. |

Glaumbær
|
Reykir
Einnig er sögulegt minjasafn á Reykjum, rétt hjá Steinstaðaskóla, en þar hefur
Kristján Jóhannesson endurreist torfbæ forfeðra sinna frá 19. öld. |
|
Víðimýrarkirkja
Sóknarkirkjan á Víðimýri, sem er til hægri rétt eftir að komið er niður úr
Vatnsskarðinu, var byggð 1834. Kristján Eldjárn hefur sagt um kirkjuna að hún sé
"einn stílhreinasti og fegursti minjagripur íslenskrar gamallar byggingarlistar,
sem til er". Byggingarefnið var torf og rekaviður af Skaga. Í kirkjunni eru einnig
varðveittir ýmsir kirkjumunir úr fyrri kirkjum á staðnum svo sem prédikunarstóllinn
og dönsk altaristafla frá árinu 1616. [til baka] |

Víðimýrarkirkja
|
Afþreying og þjónusta í Sölvanesi og nágrenni
|
|
Göngur og réttir
Það hefur verið æ vinsælla hjá
ferðamönnum að taka þátt í göngum og fara í réttir.
Frá Sölvanesi er stutt yfir Kiðaskarð í Stafnsrétt. Sú
leið er skemmtileg hvort sem farið er á hestum eða jeppum.
Innansveitar er réttað í Mælifellsrétt. |

Stafnsrétt í Svartárdal,
A-Hún.Ljósm:EM
|
Rafting
Fyrir þá, er leita ævintýra og áhættu eru bátasiglingar af ýmsum erfiðleikastigum
í boði á Jökulsánum í Austurdal og Vesturdal, hjá fyrirtækjunum Ævinýraferðum
og Bátafólkið. Í siglingunum njóta farþegar nýs sjónarhorns af náttúrufegurð
Skagafjarðar. |
|
Sund
Nokkuð er um heitar uppsprettur í Skagafirði - eins og reyndar um allt Ísland -. Því
eru víða sundlaugar og heitir pottar, þar sem þreyttir ferðalangar geta látið
líða úr sér þreytu dagsins. Næstu sundlaugar við Sölvanes eru í
Steinsstaðaskóla, í Varmahlíð og á Sauðárkróki.
|
|
Hestar og útreiðar
Skagafjörður er víðþekktur fyrir hesta. Í boði eru styttri eða lengri ferðir á
hestum hjá ýmsum hestaleigum og skipuleggjendum hestaferða. Næsta hestaleiga er
á Lýtingsstöðum, aðeins 5 mín. akstur frá Sölvanesi Leitið upplýsinga hjá
Sveini og Evelyn í s: 453-8064, netfang:info@lythorse.com
veffang:http://www.lythorse.com
|

Frá Brennureið Skagfirðinga
|
Veiði
Víða í héraðinu eru lax og silungsveiðiár. Rétt við bæjarvegginn í Sölvanesi
rennur Svartá, en í henni er gestum heimil ókeypis urriðaveiði. |
|
Viðhald og viðgerðir
Á bænum Hóli, rétt framan við Sölvanes,
er rekið verkstæði. Allar almennar
viðgerðir og viðhald sem ferðamaðurinn gæti þurft á að halda.
Hafið samband við Ásgeir Arnljótsson í s: 453-8070 / 453-8370 eða 854-0576 / 852-4089[til baka] |
|
Sölvanes, 560 Varmahlíð +++ s.: 453 80 68 +++ solvanesskag@simnet.is |