|
|
|
Ef þið eruð á ferð um norðurland, hví þá ekki að nýta sér gistimöguleika á ferðaþjónustubænum Sölvanesi. Sölvanes er við veg 752, er liggur á Sprengisandsleið, 23 km til suðurs frá hringveginum við Varmahlíð. Í eldra íbúðarhúsinu eru 3 tveggja manna herbergi og 1 þriggja manna. Eldhús og setkrókur eru í húsinu. Hægt er að panta fullt fæði eða einstakar máltíðir hjá Elínu. Leitið upplýsinga hjá Elínu og Magnúsi!
|