Um Sölvanes
Í Sölvanesi er rekinn sauðfjárbúskapur. Um
100 fjár eru á vetrarfóðrun, og sumarbeit er í Hamraheiði.
Einnig eru heimiliskýr, nokkrir kálfar, tamdir hestar til búsþurfta og 15 mera
stóð. Vinsælt er hjá börnum sem heimsækja bæinn að fá að gefa kálfunum, prófa
að mjólka og gefa heimalningum ef þeir eru.
Húsráðendur eru hjónin Magnús Óskarsson (f. 1947) og Elín Sigurðardóttir (f.
1945). Þau fluttu í Skagafjörðinn 1978 frá Húsavík þar sem þau voru kennarar.
Hafa þau haldið þeim störfum áfram samhliða búskapnum.
Fjölskyldan flutti inn í nýbyggt hús 1985. Á næstu árum eftir það var gamla
íbúðarhúsið smátt og smátt tekið í gegn og öðlaðist síðan hlutverk
gististaðar árið 1990.
[til baka] |

Sölvanes, ljósmynd: R. Jaeschke

Mondi, ljósmynd: H. Tkocz
Gráni, ljósmynd: H. Tkocz
Hrútarnir, ljósmynd R.Jaeschke
|